Vegna bilunar í póstþjóni hjá Vodafone hefur borið á því að tölvupóstur sem hefur verið sendur netfangið teitur@borgarhus.is hefur ekki borist okkur. Viljum við biðja fólk sem hefur sent okkur póst og ekki fengið svar að senda okkur aftur fyrirspurnirnar þar sem þetta á að vera komið í lag núna.
Við höfum ávallt lagt áherslu á reyna að svara öllum fyrirspurnum innan 24 stunda.
Nú er sumarið liðið og farið að hausta. Borgarhús hefur staðið í fjölbreyttum verkefnum að undanförnu, bæði stórum og smáum.
Á undanförnum misserum hafa fjölmargir Íslendingar búsettir erlendis sett sig í samband við okkur og sýnt því áhuga að byggja sér frístundahús hér heima til að eiga aðsetur þegar það kemur heim í frí. Viljum við benda fólki á að aldrei hefur verið eins hagstætt að láta drauminn rætast þar sem gengið á krónunni er í sögulegu lágmarki.
Því ættu brottfluttir Íslendingar að setja sig í samband við okkur og nýta þetta einstaka tækifæri sem gefst núna á þessum umbrotatímum í íslensku efnahagslífi.
Fyrst að útrásin mistókst þá verðum við bara að bjóða fólki upp á innrás.
Nú þegar farið er að líða á sumarið eru starfsmenn Borgarhúsa önnum kafnir við að ganga frá síðustu húsunum sem byggð voru í vetur, einnig eru að rísa ný hús sem verða afhent í haust og næsta vor.
Það hafa margir lagt leið sína til okkar að undanförnu til að kynna sér húsin og hvetjum við fólk endilega til að renna við hjá okkur ef það er á ferðinni.
Einnig er alltaf hægt að nálgast upplýsingar með því að hringja eða senda tölvupóst.
Nú þegar sól fer að hækka á lofti fara húsin að tínast eitt af öðru af planinu hjá okkur og hefst þá frágangur á þeim og vinna við verandir og heita potta. Eins förum við líka að huga að nýjum húsum þannig að það verða vitanlega áfram einhver hús til að skoða hérna á planinu.
Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem hafa lagt leið sína til okkar að skoða húsin á undanförnum vikum, er ekki hægt að segja annað en þessar laugardagsopnanir okkar hafi mælst vel fyrir og áhuginn hafi verið mikill hjá fólki að fá að sjá húsin með eigin augum. Þetta er eitthvað sem við eigum örugglega eftir að endurtaka seinna meir, en rétt er að benda fólki samt á það að við erum hér alla virka daga frá 7.30-16.30 og svo eftir samkomulagi ef annar tími hentar betur, þá er best bara að hringja í okkur eða senda okkur línu í tölvupósti og við finnum út úr því.
Borgarhús ehf. verður með opið á milli kl. 10-17 laugardaginn 22. mars. Geta áhugasamir rennt við og skoðað húsin sem við erum með á planinu og spjallað við sölumenn yfir rjúkandi kaffibolla.
Nú þegar þorrinn heilsar með snjó og frosti eru margir sem hafa það gott í frístundahúsum frá Borgarhúsum. Þó úti sé kuldablástur þá er ávallt hlýtt og notalegt inni.
Ekki er gefið neitt eftir í framleiðslunni þó á móti blási og gengur vel að smíða hús sem verða afhent kaupendum í vor og sumar.
Núna eru á planinu hjá okkur nokkur hús sem mörg eru langt komin og því tilvalið að líta við hjá okkur og skoða það sem við höfum upp á að bjóða. Og að sjálfsögðu er alltaf heitt á könnunni.
Starfsmenn Borgarhúsa óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu.
Annasömu sumri lokið at Friday 21st September, 2007 by admin Þá er sumarvertíðinni lokið og komið haust. Borgarhús afhenti mörgum ánægðum kaupendum ný frístundahús t.d Grund 61, Grund 65, Grund 75 ofl hús. Jarðvinna, undirstöður, pallasmíði, handrið og skjólveggir fylgjs svo oftast með í pakkanum en þó er það misjafnt milli kaupenda hvaða þjónustu þeir kaupa. Mörg hús eru í burðarliðnum fyrir veturinn til afhendingar næsta vor, og því haustið rétti tíminn til að huga að pöntunum á nýjum húsum. Kveðja Vefstjóri
3-D myndir komnar á heimasíðu Borgarhús.is at Wednesday 2nd May, 2007 by admin Þá eru nýju þrívíddarmyndirnar komnar á netið. Þar má sjá hús eins og Flöt 40, Grund 61, Grund 75 og svo Grund 84. Þetta gefur skemmtilega innsýn í rými húsanna. Erum þó með nokkur Grundarhús í mörgum stærðum á hlaðinu hjá okkur þessa stundina sem hægt er að skoða. Öllum velkomið að hafa samband og fá að skoða. Kær kveðja-Vefstjóri
Stórsýning í Fífunni um helgina at Friday 20th April, 2007 by admin Borgarhús ehf verðu með bás (ásamt Minniborgum ehf)í Fífunni um helgina, en þar eru þrjár sýningar sameinaðar undir einu þaki; Ferðasýningin, Golfsýningin og Sumarið 2007. Það þýðir að aldrei hefur þessi sýning verið eins viðamikil og nú, aldrei fleiri sýnendur. Allir velkomnir í básin okkar D-6. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja Örvar B.H. vefstjóri
Glænýjar þrívíddarmyndir at Thursday 22nd February, 2007 by admin Borgarhús ehf hefur nóg að gera þessa dagana. Ein 14 hús eru í smíðum hjá fyrirtækinu um þessar mundir. Vinsælast er Grund 75 enda stórskemmtilegt hús þar á ferðinni, rúmgott og vel skipulagt. Á næstunni munum við endurbæta heimasíðuna okkar verulega t.a.m. ætlum við að setja inn glænýjar þrívíddarmyndir af okkar helstu húsum. Þá geta kaupendur áttað sig enn betur á húsunum okkar. Kveðja í bili-Örvar BH.
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár at Friday 22nd December, 2006 by admin Um leið og við þökkum fyrir árið sem er að líða óskum við landsmönnum nær og fjær góðra jóla og farsældar á komandi ári. Kær kveðja Örvar Hólmarsson
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár at Friday 22nd December, 2006 by admin Óskum landmönnum öllum nær og fjær góðra jóla og farsældar á komandi ári. Kær kveðja Örvar B.Hólmarsson
Mikil eftirspurn um hásumar at Saturday 29th July, 2006 by admin Mikil eftirspurn eftir húsum hefur verið undanfarið og erum við nú þegar farnir að raða húsum inní haustið og veturinn. Grundarhúsin eru sem endranær vinsælust en töluvert hefur einnig selst af Flatar-húsum, í nokkrum mismunandi stærðum þó. Frágangur hefur verið í sumar á húsum eins og t.d. Grund 84 og Grund 93 og Grund 79 ofl. Myndir af þeim munu rata inná síðuna okkar við fyrsta tækifæri. Þangað til næst. Kær sumarkveðja. Örvar B.Hólmarsson
Grund 84 - vinsælt hús at Tuesday 21st February, 2006 by admin Borgarhús er um þessar mundir að smíða 2 stk af gerðinni Grund 84. Þau heita það sama og líta eins út en eru ólík að innri gerð. Báðar gerðirnar eru þó búnar 3 svefnherbergjum, en í öðru þeirra er útgengt útí heitan pott út úr geymslunni líkt og í Grund 72/75 húsunum. Vefstjóri spáir Grund 84-húsinu vinsældum enda húsið stórt og rúmgott á alla kanta. Annars annað í smíðum er risahúsið Grund 93, Grund 75, Grund 61, Flöt 56,FLöt 45 og svo ný gerð af húsi sem heitir Flöt 69 og er 3. herbergja rúmgott hús. Í vændum er svo m.a. stækkað Grund 61 og kemur til með að heita Grund 65 og verður ný gerð. Það verður með samskonar afturparti og Grund 61 en alrýmið verður stærra. Minni á að Borgarhús verður með bás á sýningunni sumarhúsið og garðurinn sem haldin verður í lok apríl nk í nýju Laugardalshöllinni. Öllum velkomið að líta við og spjalla og þiggja kannski kaffitár. Kveðja þangað til næst. Örvar BH-vefstjóri
Óskum landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. at Thursday 22nd December, 2005 by admin Borgarhús.is óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökkum fyrir ánægjuleg kynni og viðskipti á árinu sem er að líða. Jólakveðja Örvar B.Hólmarsson-Vefstjóri
Ágúst stærsti mánuður frá upphafi Borgarhus.is at Friday 9th September, 2005 by admin Ótrúlegt en satt þá toppaði ágústmánuður bæði mars og apríl sl með 1156 heimsóknir. Ótrúlegt en engu að síður staðreynd. Borgarhus.is hefur verið í loftinu núna í 2 1/2 ár og sækir stöðugt í sig veðrið. Annars 5 stykki hús nýrisin á hlaðinu hjá okkur. Að sjálfsögðu hið vinsæla hús Grund 61 og Flöt 56 og Flöt 45. 2 stk af Grund 75 verða svo reist líka innan tíðar sem og ný gerð af húsi sem heitir Flöt 69 og er með þremur herbergjum og rúmgóðri stofu. Grund 84 virðist líka ætla að vekja áhuga enda stórt og mikið hús það. Annars kveðja í bili. Góðar stundir í haust. Örvar B.Hólmarsson
Ágúst stærsti mánuður frá upphafi Borgarhus.is at Friday 9th September, 2005 by admin Ótrúlegt en satt þá toppaði ágústmánuður bæði mars og apríl sl með 1156 heimsóknir. Ótrúlegt en engu að síður staðreynd. Borgarhus.i hefur verið í loftinu núna í 2 1/2 ár og sækir stöðugt í sig veðrið. Annars 5 stykki hús nýrisin á hlaðinu hjá okkur. Að sjálfsögðu hið vinsæla hús Grund 61 og Flöt 56 og Flöt 45. 2 stk af Grund 75 verða svo reist líka innan tíðar sem og ný gerð af húsi sem heitir Flöt 69 og er með þremur herbergjum og rúmgóðri stofu. Grund 84 virðist líka ætla að vekja áhuga enda stórt og mikið hús það. Annars kveðja í bili. Góðar stundir í haust. Örvar B.Hólmarsson
Mars og Apríl metmánuðir í heimsóknum at Tuesday 19th July, 2005 by admin Síðastliðin mars rauf vefsíðan okkar 1000 heimsókna-múrin. Í apríl bætti svo um betur og varð hann sá stærsti síðan heimasíðan okkar fór í loftið í upphafi árs 2003. 1076 heimsóknir voru það. Kærar þakkir það. Og þótt maí og júní hafi verið með aðeins færri heimsóknir þá er heimasíðan okkar www.borgarhus.is greinilega í mikilli sókn þetta árið. Enda er það í samræmi við ábendingar fólks sem hefur samband við okkur. Flestir lýsa ánægju sinni yfir því að geta farið inná svona flotta heimasíðu og skoðað fleiri hundruð myndir-bara í rólegheitum heima hjá sér, áður en lengra er haldið. Það hvetur okkur til að gera betur að sjálfsögðu. En nóg um það. Mikið af húsum eru seld fyrir næsta vetur og fyrst ber að nefna Grund 61 húsið sem virðist ætla að vera áfram það vinsælasta. Grund 93 og svo ný gerð sem heitir Grund 84 verða einnig smíðuð sem og fleiri og minni hús. Sem sagt nóg framundan og ekkert nema gott um það að segja. Annars óskar vefstjóri öllum góðs sumars og lýsir því yfir að bráðum fari að koma nýjar myndir af húsum sem ekki hafa sést á síðunni okkar áður. Kær kveðja. Örvar B.Hólmarsson
Yfir 1000 heimsóknir í Mars at Saturday 16th April, 2005 by admin Já þið lásuð rétt. Það voru yfir 1000 heimsóknir inná borgarhus.is í mars sl. Þetta eru vægast sagt góð viðbrögð og þökkum við kærlega fyrir. Annars af helstu verkefnum er það að frétta að Grund 93 risahúsið klárst nú með vorinu. Holt 70 húsið með tveimur geymslunum verður reist í vikunni sem og Grund 75. Þetta eru allt hús sem byggjast á lóðum kaupenda. Af hlaðinu okkar er það að frétta að langt komin eru Grund 72 og Grund 75 og verða flutt sennilega í maí. 3 stk af Grund 61 eru einnig risin og orðin fokheld og verða klár til útleigu í Minniborgum í byrjun júlí. Það virðist vera að Grund 61 sé að verða vinsælasta hús sem boðið hefur verið uppá. Nokkur slík eru seld spenntum kaupendum og flest til afhendingar vorið 2006, sem og reyndar fleiri hús. Þetta ár er að verða nokkuð þéttsetið og ekkert nema gott um það að segja. Annars af öðrum tíðindum er það að Borgarhús ehf og reyndar Minniborgir ehf eru með samliggjandi bása á sýningunni Sumarið 2005 sem haldin er í fífunni þetta árið. Margir komu á básinn okkar í fyrra og vonandi verða þeir ekki færri þetta árið. Allir velkomnir á básana okkar um helgina 15-17 apríl, þó ekki væri nema til að þiggja kaffisopa. Annars kær kveðja. Örvar B.Hólmarsson-Vefstjóri
Febrúar metmánuður at Thursday 10th March, 2005 by admin Ekki bjóst undirritaður að janúar sl yrði slegin strax út en það er það sem gerðist í febrúar. Heimasíðan okkar var opnuð 884 sinnum í febrúar. Hluti af ástæðunni er sú að Minniborgir ehf voru að opna 19-20 feb sl en þá mættu 4-500 manns að skoða. Sunnudaginn 20 feb kíktu 82 inná síðuna okkar sem er ótrúlegt. Sú vika reyndist einnig sú stærsta í heimsóknum frá upphafi Borgarhus.is. Margir lýstu ánægju sinni yfir vönduðum vinnubrögðum og góðum frágangi húsanna. Leigan á þeim fer líka vel af stað. Borgarhús mun ekki slaka á kröfum gagnvart eigin framleiðslu, heldur halda áfram að þróa húsin og gera þau enn betri. Margt er í farvatninu og við nú þegar farnir að selja hús fyrir vorið 2006. Verkefnastaðan er góð út þetta ár og lofar það góðu. Grund 61 virðist ætla að verða vinsælt hús því nú þegar er búið að panta nokkur slík, enda mjög skemmtileg stærð af húsi. En vefstjóri kveður í bili þangað til næst. Kveðja Örvar B.Hólmarsson
Janúar metmánuður at Friday 11th February, 2005 by admin Það er alveg ótrúlegt hvað heimasíðan okkar er vinsæl á nýja árinu. Hvorki fleiri né færri en 696 heimsóknir í janúar, og slær þar með út október 2004 sem var með 464 heimsóknir. Þetta erum við að sjálfsögðu mjög ánægðir með og virðist þetta líka vera í samræmi við hringingar og fyrirspurnir. Semsagt mikið spurt og mikið spáð í húsunum okkar strax í upphafi árs, sem annars hefur verið frekar rólegur mánuður frekar en hitt. Búið er að reisa og gera fokheld 8 stk af Flöt 28 fm húsum sem eru byggð fyrir Minniborgir. Þau verða til afhendingar og útleigu í byrjun sumars. Annars ætla Minniborgir ehf að opna fyrstu 3 húsin sín til útleigu laugardaginn 19 og sunnudaginn 20 febrúar nk. Það verður opið hús og öllum boðið í kaffi og kleinur, og að skoða sig um og sjá þessi 3 stk af Grund 61 fullbúin með innréttingum og öllum húsbúnaði. Semsagt allir velkomnir í formlega opnun sem verður milli kl 12.00 - 18.00 báða daganna. Annars kær kveðja. Örvar B.Hólmarsson-Vefstjóri
Árið 2005 fer vel af stað at Sunday 16th January, 2005 by admin Árið 2004 kom vel út á borgarhus.is síðunni okkar. Alls var vefurinn okkar opnaður 3200 sinnum!! Það erum við að sálfsögðu mjög ánægðir með. Fjölsóttasti mánuðurinn 2004 var október með 464 opnanir. Lakasti mánuðurinn var júlí með 319 skipti. Stærsti dagurinn var 11 maí með 40 heimsóknir, en það var eftir sýninguna í laugardalshöllinni þar sem fjöldi manns heimsóttu básinn okkar. Sá tími dags sem vefurinn okkar er mest opnaður er kl 21.00 til miðnættis. Einnig er mikið opnað frá 11-12 fyrir hádegi. Mánudagar og þriðjudagar eru þeir dagar sem vefurinn er hvað mest skoðaður. Annars fer nýja árið einkar vel af stað og til dæmis hefur janúar mánuður verið sérstaklega fjölsóttur eða 300 heimsóknir komnar nú þegar og mánuðurinn einungis hálfnaður. Ef heldur áfram sem horfir verður janúar metmánuður en við sjáum til. Annars er það í samræmi við hringingar og fyrirspurnir sem eru mjög margar þessa daganna. Fólk virðist ætla að taka árið snemma hvað þetta varðar. Verkefnastaðan er mjög góð hjá Borgarhús í vetur og kemur mjög sennilega til með að aukast með hækkandi sól. Nýtt efni kemur inná síðuna okkar í jan-feb. Mörg hús eru í smíðum sem ekki hafa sést áður. Kveðja þangað til næst. Örvar B.Hólmarsson-Vefstjóri
Gleðileg jól og farsælt komandi ár at Thursday 23rd December, 2004 by admin Þótt myrkur og kuldi hafi gert vart við sig undanfarið höfum við ekki slegið slöku við. Grund 93 húsið stóra er nú risið og orðið fokhelt. Reikna má með myndum af því á nýja árinu. Grundarhúsin þrjú sem og þjónustuhúsið fyrir Minniborgir eru nú á lokastigi og fara í útleigu í janúar. Annars er bjart framundan og næg verkefni. Byrjað er nú þegar á næstu 10 húsum fyrir Minniborgir sem verða flutt í mars apríl. Grund 72 og 75 eru orðin fokheld og gott betur og verða afhent snemma í vor. Að lokum óskum við landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári með kærum þökkum fyrir innlitið á liðnu ári. Hátíðarkveðja Örvar B.Hólmarsson-vefstjóri
Metmánuður inná Borgarhús.is at Wednesday 3rd November, 2004 by admin Síðastliðin október var sá fjölsóttasti inná síðuna okkar frá því að teljarinn var settur inn 11 maí sl. 464 heimsóknir í mánuðinum, og erum við að sjálfsögðu hæstánægðir með það. Af helstu verkefnum okkar er það helst að frétta að 3 stk af Grund 61 fyrir Minniborgir eru nú á lokasprettinum."Tvíburarnir" Grund 72 og Grund 75 voru reist núna um miðjan október og eru komin á fullt skrið. Til stendur að reisa núna í nóvember stærsta húsið sem heitir Grund 93, og loka því fyrir veturinn, og afhenda það síðan í vor. Flaggskipið Grund 80 er nánast klárað. Framundan eru 7 stk af Flöt 28 fyrir Minniborgir sem og aftur önnur 3 stk af Grund 61. Einnig eru í farvatninu fleiri Grund 75 hús, en það virðist ætla að fylgja eftir minni bróðurnum Grund 72 sem hefur verið mjög vinsælt þetta ár og það síðasta. Allir velkomnir að skoða hjá okkur frístundarhúsin glæsilegu. Kveðja Örvar B.Hólmarsson vefstjóri
Grund 61,Grund 61 og Grund 61 at Monday 30th August, 2004 by admin Nú nýverið voru 3stk Grund 61 reist á hlaðinu við Borgarhús. Þessi hús eru byggð fyrir Minniborgir ehf og verða öll komin í útleigu fyrir jól. Verið er að leggja lokahönd á Holt 56 húsið sem er á hlaðinu og fer það uppí Biskupstungur. Grund 80 er einnig á lokasprettinum. Það eru mörg verkefni framundan hjá Borgarhús m.a. Grund 93 sem verður stærsta Grundarhús sem við höfum byggt. Verður það afhent nk. vor. Einnig eru Grund 72 og 75 vinsæl hús og liggja 2 slík fyrir til afhendingar vorið 2005. Önnur hús eru t.d Flöt 52, Holt 52 og Holt 70 sem verður byggt í vetur á steyptri plötu. Er það hús stækkað Holt 65 og er með 2 geymslum og útgengt af baði, enda sérhannað fyrir nýjan kaupanda. Sem sagt mikið af verkefnum framundan og við að sjálfsögðu í góðum gír. Kveðja Örvar BH-vefstjóri
Grund 72 og Grund 75 afhent fullbúin í júlí at Wednesday 21st July, 2004 by admin Nú í júlímánuði hefur Borgarhús afhent tvö stór Grundarhús til ánægðra viðskiptavina. Grund 75-húsið er stærsta hús sem við höfum híft í heilu lagi, og gekk það bara furðu vel m.v.stærð hússins. Það eina sem tafði flutninginn að þessu sinni voru raflínur sem þurfti að slá út og lyfta hærra til þess að bíllinn og vagninn með húsið kæmist undir. Nýjar myndir af flutningi á Grund 72 koma fljótlega inná netið sem og myndir af Grund 75. Heimsóknir í júnímánuði inná borgarhus.is náðu ekki sama fjölda og þær gerðu í maí. Ástæður fyrir því geta verið sumarfrí landans og það að sýningin í byrjun maí fékk marga inná síðuna. Annars hefur Borgarhús mörg járn í eldinum og verkefnastaðan er mjög góð út þetta ár. Verið er að klára Holt 65. Holt 56 er komið vel af stað og tvö Grund 61 fara af stað næstu daga. Kærar sumarkveðjur-Örvar BH-vefstjóri.
444 heimsóknir í maí 2004 at Thursday 3rd June, 2004 by admin Teljari var settur inná borgarhus.is í byrjun maí síðastliðinn. Óhætt er að segja að heimsóknir inná síðuna séu fleiri en við þorðum að vona. 444 voru heimsóknirnar í maí sem gera um 14-15 á dag að jafnaði allan mánuðinn. Kærar þakkir fyrir það. Það helsta sem liggur fyrir hjá borgarhús þessa dagana er að klára Grund 72 og Grund 75. Búið er að reisa Grund 80 húsið og Holt 56 og Grund 61 eru í burðarliðnum. Einnig erum við að byggja hús eftir annara teikningum, þótt vissulega sé það sjaldnar. Kveðja-Örvar BH-vefstjóri
Kærar þakkir at Tuesday 11th May, 2004 by admin Borgarhús ehf þakkar öllum þeim er kíktu á básinn okkar um helgina, kærlega fyrir. Óhætt er að segja að margir hafi lagt leið sína og spjallað við okkur á sýningunni, og höfðum við mjög gaman af. Sýndum við fólki myndir og teikningar. Það sem kom mörgum á óvart var að hversu rúmgóð efri loftin eru í Grundarhúsunum. Þar er lofthæðin vissulega háð breidd húsanna að aftanveru en t.d í Grund 72,73,74 og 75 er hún 2,26-2,31. Ef fólk leitar að frístundahúsum með góðu efralofti þá eru Grundarhúsin sér á báti. Nýjar myndir af fullkláruðu Grund 74 og Holt 62 húsunum koma inná vefinn okkar fljótlega. Ætla má að myndafjöldinn á borgarhús.is sé að nálgast 700. Myndir segja meira en þúsund orð. Öllum velkomið að hafa samband og fá uppl. gegnum info@borgahus.is Kær kveðja Örvar B.H.-Vefstjóri
Sumarið 2004-stórsýning at Monday 3rd May, 2004 by admin Borgarhús verður með bás á sýningunni Sumarið 2004 sem verður haldinn í Laugardalshöllinni 7-9 maí nk. Er það í fyrsta skipti sem fyrirtækið tekur þátt í slíkri sýningu. Gert er ráð fyrir 25-30 þús. gestum á sýninguna. Af vefnum okkar er það helst að frétta að alltaf eru að koma nýjar myndir inn, og núna síðast komu nýjar myndir af Flöt 78 húsinu sem var afhent í síðustu viku. Einnig eru komnar myndir af Holt 66 sem vantaði alltaf, sem og fleiri myndir af Flöt 56 sem var flutt á áfangastað um miðjan apríl. Einnig hefur Borgarhús afhent Grund 74 sem sagt var frá áður. "Rúmgott og glæsilegt" eru orðin sem eiga við það hús enda er það með 3. svefnherbergjum, góðu alrými og mjög rúmgóðu efra lofti þar sem mænishæðin er 2.31m á hæð. Borgarhús er síðan að fara að byrja á nýrri gerð sem er byggð á Grund 74-húsinu, en það verður Grund 80 s.s. stækkaður afturhlutinn á Grund 74 til að fá rúmbetri herbergi og breiðari gang. Verður það þá stærsta Grundarhús sem við höfum byggt. Annars allir velkomnir á básinn okkar næstu helgi í Laugardalshöllina. Kveðja Örvar B.H.-vefstjóri
Á annað hundrað myndum bætt inná Borgarhus.is at Saturday 13th March, 2004 by admin Bætt hefur verið á annað hundrað glænýjum myndum inná heimasíðuna okkar www.borgarhus.is. Nokkrar nýjar gerðir líta dagsins ljós á vefnum s.s. Flöt 33, Flöt 56, Flöt 64, Flöt 78, Grund 74 ofl. Einnig hafa bæst myndir við Holt 62 og Grund 58. Gaman verður að sjá Grund 74-húsið fullbúið en það styttist óðum í það. Víst má ætla að þetta sé eitt það glæsilegasta sem við höfum byggt, þótt mörg séu þau falleg. Hægt er að smella á "um húsin" til að skoða nýjustu myndirnar af því. Óhætt er að segja að borgarhus.is vefurinn státi af langflestum myndum samanborið við aðrar vefsíður í þessum geira. Margir lýsa ánægju sinni yfir því að skoða vefinn okkar og erum við að sjálfsögðu stoltir af því að geta boðið fólki í hálfgerða myndasýningu á vefnum. Þótt myndir segi meira en þúsund orð þá hvetjum við alla sem áhuga hafa að koma austur til okkar og skoða húsin með eigin augum. Á planinu hjá okkur eru þrjú hús þessa stundina en ætla má að þeim fjölgi nú með vorinu. Allir velkomnir. Kveðja-Vefstjóri-Örvar B.Hólmarsson
Borgarhus.is 1.árs at Monday 2nd February, 2004 by admin Borgarhus.is fagnar þessa dagana 1.árs afmæli sínu og um leið þakkar mjög góðar viðtökur á þessu fyrsta ári. Okkur hafa borist á annað hundrað bréf frá fólki viðsvegar af landinu s.s. Húsavík, Akureyri,Egilsstöðum, Keflavík ofl.Kærar þakkir. Tilgangur heimasíðunnar er vissulega sá að fólk getur auðveldlega nálgast efni og fengið upplýsingar. Að fjárfesta í framtíðar-frístundahúsi er ekki ákvörðun sem er tekin á einum degi og því þarf að vanda vel valið. Við hjá Borgarhús ehf leggjum ríka áherslu á að ráðleggja fólki varðandi hús sem og alla aðra vinnu sem fylgir. Segja má að við höfum nú 15 ára reynslu í slíku, og bjóðum okkar viðskiptavinum uppá einlæga ráðgjöf varðandi allar framkvæmdir. Heldur Borgarhús ehf uppá 15 ára starfsafmæli á þessu ári og mun bjóða öllum í kaffi og veitingar með hækkandi sól. Kveðja þangað til næst-Örvar BH-Vefstjóri
Grund 75 og Grund 61 at Tuesday 13th January, 2004 by admin Borgarhús.is óskar öllum landsmönnun gleðilegs árs og velfarnaðar á komandi ári. Það nýjasta í smíðum hjá okkur á nýja árinu er stækkað Grund 73 sem við birtum hér á vefnum sl. vor. Það hús heitir því Grund 75 og verður afhent fullbúið sennilega í mars 2004. Annað hús er orðið til á teikniborðinu okkar og heitir það Grund 61 og er í raun stækkað Grund 58 hús. Reiknað er að hefja smíði á þremur slíkum húsum nú með vorinu. Munum við birta teikningar og myndir eins fljótt og auðið er af þessum nýju frístundahúsum. Þessi hús sýna enn og aftur hversu breið og sveigjanleg okkar framleiðsla er. Okkar markmið er að smíða hús sem henta sem flestum hvort sem um einstaklinga eða hópa ræðir. Einnig eru á hlaðinu hjá okkur hús til sýnis s.s. Holt 62, Flöt 56, Flöt 33 ofl. Öllum velkomið að koma og skoða. Kær kveðja Örvar BH-vefstjóri
Grund 72 og Flöt 78 at Monday 10th November, 2003 by admin Borgarhús hefur bætt enn einni rós í hnappagatið. Grund 72 var afhent ánægðum viðskiptavini sl. september. Húsið er glæsilegt í alla staði,og hannað að hluta til af eiganda. Glænýjar myndir af þessu húsi eru nú þegar komnar inná heimasíðuna okkar. Einnig er Borgarhús að byrja á nýrri gerð af húsi,Flöt 78 sem er nýteiknað hús. Sökum mikillar breiddar hússins að aftanverðu er þakið upptekið eins og í Grundarhúsunum þótt ekkert sé svefnloftið. Teikningar af þessu húsi eru væntanlegar inná Borgarhus.is Bestu kveðjur Örvar BH-Vefstjóri
100 nýjar myndir á Borgarhus.is at Monday 15th September, 2003 by admin Höfum bætt við á annað hundrað nýjum myndum inná vefsíðuna okkar. Nýjar myndir af húsum sem byggð hafa verið í sumar t.d. Holt 45,Holt 56,Holt 65 og Grund 67. Ánægðir viðskiptavinir okkar taka þátt í því að velja sér draumahúsið, enda eru möguleikarnir svo til óþrjótandi. Erum einnig að smíða ný hús í þessum skrifuðu orðum t.d Flöt 64 og Flöt 33. Öllum velkomið að koma og skoða og/eða hafa samband. Myndir segja meira en þúsund orð,og að sjálfsögðu er öllum velkomið að koma austur fyrir fjall og skoða húsin okkar. Kveðja-Örvar B.H vefstjóri
Mikið um fyrirspurnir í gegnum Borgarhus.is at Thursday 19th June, 2003 by admin Okkur hefur borist fjöldinn allur af tölvupósti og fyrirspurnum á netinu sem og símleiðis það sem af er sumri. Gott mál það. Fólk er jafnvel farið að huga að pöntunum hjá okkur fyrir sumarið 2004. Mörg hús eru í smíðum og fólki er velkomið að hafa samband og skoða hjá okkur mismunandi húsgerðir. Einnig eru væntanlegar nýjar myndir hér á netið af nýsmíðuðum frístundahúsum. Kær kveðja-Vefstjóri
Loksins! Loksins! at Tuesday 13th May, 2003 by admin Loksins eru nýju myndirnar af Grund 73 komnar inná síðuna okkar. Hægt er að fara í ,,um húsin" og velja þar Grund 73 eða smella beint hérna http://www.borgarhus.is/husin/grund73.php til að komast í myndasafnið. Endilega sendið okkur fyrirspurnir ef einhverjar spurningar vakna. Gleðilegt sumar. Vefstjóri
Nýjar myndir at Tuesday 8th April, 2003 by admin Von er á nýjum myndum á síðuna af glæsilegu húsi. Það heitir Grund 73 og hefur ekki verið byggt áður. Verið er að klára húsið að innan þessa dagana. Stefnan er að koma þeim inná síðuna fyrir páska. Kveðja, Vefstjóri
Góðar viðtökur at Friday 28th February, 2003 by admin Eftir aðeins 1 mánuð í loftinu hefur Borgarhus.is fengið mjög góðar viðtökur. Fjöldi manns hefur sent inn fyrirspurnir á netinu og ekki færri hringt. Augljóst er að vefsíðan virkar vel. Þökkum við kærlega fyrir það. Áfram verða sagðar fréttir af efni tengdu sumarhúsum og fólkinu í þeim. Það er farið að styttast í vorið og margir farnir að hugsa til sumarsins, í fallegu sumarhúsi auðvitað. Kær kveðja þangað til næst. Vefstjóri
Loksins opnuð vefsíða at Wednesday 29th January, 2003 by admin Borgarhús ehf opnar nú í Janúar nýja glæsilega vefsíðu. Verkefni þetta hefur verið í burðarliðnum á annað ár en er nú loksins orðið að veruleika. Tilgangurinn er sá að auglýsa fyrirtækið á netinu og auðvelda samskipti milli Borgarhús ehf og almennings. Vefstjóri óskar fyrirtækinu til hamingju með áfangann og ósk um gott gengi.
Afhending at Friday 24th January, 2003 by admin Í byrjun sumars 2002 afhenti Borgarhús ehf, starfsmannafélagi Kirkjugarða Reykjarvíkurprófastsdæmis, nýtt veglegt frístundahús. Afhendingin átti sér stað á landi hins forna höfuðbóls, Skálholti í Biskupstungum, en þar á starfsmannafélag KGRP lóð. Stjórn og starfsmenn KGRP buðu þangað starfsmönnum Borgarhúsa ehf til veislu og formleg afhending átti sér stað. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Borgarhús ehf óskar starfsmannafélagi KGRP innilega til hamingju með nýja húsið og óskar þeim góðs dvalar í framtíðinni.
Á myndinni má sjá Hólmar B.Pálsson framkvæmdarstjóra Borgarhús ehf afhenta Þórsteini Ragnarssyni forstjóra KGRP lykilinn að nýja húsinu. Við hlið þeirra eru Bjarni Kr. Hermannsson í stjórn KGRP (til vinstri) og svo Jóhannes Pálmason stjórnarformaður KGRP (lengst til hægri). Nokkuð fjölmennt var við afhendinguna.