Borgarhús ehf. hefur sl. 17 ár
lagt metnað sinn á að smíða
vönduð og jafnframt falleg frístundahús.
Hús frá Borgarhús eru
nú dreifð víða um
uppsveitir Árnessýslu og víðar,
og allstaðar er látið vel
af þeim.
Húsgerðir okkar eru í
megindráttum þrjár.
Flöt kallast þau hús sem
ekki eru með svefnlofti. Síðan
eru það Holt-húsin sem
eru með svefnlofti, en eru annars teiknuð
á sama grunni og Flatar-húsin.
Að lokum eru það hús
sem kallast Grund, með tvístalla
þaki. Allar þessar gerðir
fást í mismunandi stærðum
sem ætti að henta flestum.
Borgarhús ehf. sér um að
smíða glugga og hurðar af
vandaðri gerð.
Hægt er að velja úr um
80 mismunandi gerðum húsa.
• Hægt er að fá
öll okkar hús á mismunandi
byggingarstigum, frá fokheldu að
fullbúnu
• Fokhelt; hús frágengin
að utan með endaverönd og
gólf einangrað (nema að
um steypta gólfplötu sé
að ræða)
• Fullbúin eru húsin;
frágengin að utan með endaverönd,
panel/plötuklædd að innan,
rafmagns,- og hitalagnir, hreinlætis,-og
blöndunartæki, innréttingar,
innihurðar og gólfefni.
• Hægt er að velja um
mismunandi innréttingar, gólfefni,
gluggagerðir ofl. Allt í samráði
við óskir kaupanda hverju sinni.
• Hliðarverandir/skjólveggir
og handrið, tengingar á veitum
hússins í geymslu, heitur
pottur á verönd+tengingar,
inniljós, raftæki og rúmdýnur
eru ekki innifalin í fullbúnu
verði.
• Vönduð vinna og vanir
menn.
Allar fyrirspurnir varðandi
okkar hús eru velkomnar á
netfangið
teitur@borgarhus.is