Borgarhús ehf var stofnað
árið 1990 að Minni-Borg
í Grímsnesi og hefur á
þeim tíma byggt yfir 200
heilsárs-frístundahús.
Algengasta stærð húsa
er um 60-70m2 . Þó hefur
mest verið byggt af stærri húsum
með tvílyftu þaki og
þá manngengu svefnlofti t.d.
Grund 61 og Grund 75 sem dæmi. Einnig
er nokkuð um það að
fólk velji sér svefnloftslaus
hús. Minni hús s.s. 25-30
m2 hafa líka verið smíðuð
í ótal útfærslun
t.d. fyrir ferðaþjónustuaðila
og hestafólk. Segja má að
möguleikarnir séu svo til
endalausir, allt eftir þörfum
hvers og eins. Oft vill fólk byrja
í smærri húsum og
stækka svo við sig seinna.
Flest húsin frá Borgarhús
hafa verið staðsett í Grímsnes,-
og Grafningshrepp enda er þar langstærsta
sumarhúsabyggð á öllu
landinu með um og yfir 2000 hús.
Einnig eru hús frá okkur
í nálægum svæðum
s.s. Bláskógarbyggð,
Ölfushrepp ofl.
Fyrirtækið hefur einnig fengist
við önnur verkefni s.s. íþróttahús,
viðbyggingar og kaupleiguíbúðir,
ásamt ýmiskonar viðhaldi
og breytingum. Því er óhætt
að segja að Borgarhús hafi
að baki margra ára reynslu
í smíði frístundahúsa
og ýmiskonar viðhaldsvinnu.