Borgarhús ehf. tekur að sér alla almenna smíðavinnu, hvort sem það er viðbyggingar, viðhald eða breytingar innanhúss.
Reglulegt viðhald á sumarhúsum er mjög mikilvægt til að fyrirbyggja skemmdir og til að húsið haldi verðgildi sínu. Hvort sem þú ert að hugsa um stækkun, málningarvinnu, verönd, heitan pott, ný gólfefni eða breytingar í innra rými húsins þá höfum við bæði þekkingu og reynslu til að sjá um það.
Við erum staðsettir á besta stað miðsvæðis á stærsta sumarhúsasvæði landsins.
Hafðu samband við okkur hvort sem er í síma eða með tölvupósti og við sjáum um að klára verkið.
Hér fyrir neðan gefur svo að líta brot af þeim verkefnum sem Borgarhús tekur að sér.